You'll never walk alone
09.08.2007 10:09:25 / bassi

myspace

jæja, ég var að gera myspace síðu og hyggst halda mig við hana.

 

www.myspace.com/bassalingur

 

kveðja,

Þorsteinn


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 19:23:53 / bassi

Loksins loksins

Jæja, ég hef nú ákveðið að setja penna á blað og blogga eftir langa fjarveru.

Það er allaveg allt gott að frétta af mér, er á fullu að undirbúa sumarið. Víkingasísonið fer að byrja. Er byrjaður að sauma mér slíður fyrir sverðið og er búinn að versla mér 7 metra af hör og 5 metra af vaðmál sem Erna ætlar að sauma úr föt fyrir mig. Maður ætti því að vera ágætlega græjaður með fatnað í sumar, enda vetiir ekki af, var bara með eitt sett af fötum í fyrra sem var ekki alveg að gera sig. Hátíðin verður 8.-10. júní og 15.-17. júní hér heima (við Fjörukránna að sjálfsögðu) og auðvitað ætla allir að kíkja og fara á almennilegt víkingadjamm. Við förum svo til Danmerkur á 2 hátíðir þar um miðjan júlí, Trelleborg og Moesgård. Það verður náttúrlega bara snilld, er búinn að heyra allt of mikið af skemmtilegum hlutum sem gerast á þessum hátíðum þannig að ég get engan veginn beðið.

Ég var svo að kaupa mér árskort í Sporthúsinu áðan og ætla að fara að æfa þar á fullu (enn eitt átakið ) og vona að þetta komi til með að ganga betur en öll hin skiptin, er allt of duglegur að hætta. Egill ætlar að koma með mér þannig að það verður allavega einhver til að sparka í rassinn á manni, verður samt örugglega ég sem sparka í rassinn á honum.

 

Læt þetta duga í bili.

Bæjó.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 23:55:05 / bassi

Allt dautt

Hvað er að gerast með mig. Mér er að takast að stúta öllum hlutum sem eru mér mikilvægir á einni viku.
Gamla tölvan mín dó síðasta miðvikudag (strax búinn að fjárfesta í nýrri). Svo ákvað bíllinn minn að deyja á föstudaginn þegar ég var á leiðinni á ættarmót, var rétt svo kominn upp úr Hvalfjarðargöngunum. Held að þetta hafi verið tímareymin, á eftir að fá að vita meira um það í vikunni. Sem betur fer átti frænka mín eftir að keyra fram hjá og hún pikkaði mig upp, varð samt að skilja slatta af farangri eftir vegna plássleysis hjá henni.
Svo tókst mér að stúta símanum mínum áðan. Hann var í vasanum á vinnubuxunum mínum og ég skellti þeim í þvottavélina og svo í þurrkarann.
Hvar verður eiginlega næst???

Jam, það þýðir víst ekki að vera að væla yfir þessu. Blogga fljótlega með einhverjar sögur frá víkingahátíðunum í sumar

Þangað til næst krúttin mín

Bæjó

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 04:37:31 / bassi

Get ekki sofið

fyrst maður getur ekki sofið er alveg eins gott og nýta tímann í eitthvað nytsamlegt og segja ykkur frá mínu æðislega lífi.:lol: Er búinn að liggja upp í rúmi í nokkra tíma og reyna að sofna. Þetta kemur í bakið á manni þegar maður sefur óvart til kl 14, hehe. Ætlaði að vera svaka duglegur og vakna klukkan 8, ég hef greinilega slökkt á vekjaraklukkunni þegar ég ætlaði að snúsa.
Það er nú allt gott að frétta af mér þessa dagana. Ég er búinn að vera mjög duglegur í Technosport í apríl og maí, eða mér finnst það allavega. Ég er búinn að missa rúmlega 5 kg á þeim tíma og virðist loksins vera kominn á gott skrið hvað heilsuátak varðar, ég er allavega að verða háður því að hreyfa mig reglulega.8)
Svo er maður náttúrlega á fullu að gera sig kláran fyrir víkingahátíðarnar í sumar. Svona fyrir þá sem ekki vita er ég að æfa víkingaskilmingar með félagi sem kallar sig Rimmugýg og er búinn að gera það síðan í nóvember. Þetta er ekkert annað en snilld, þrátt fyrir að maður er duglegur að safna marblettum.
Það verða nokkrar víkingahátíðir sem ég fer á í sumar. Byrja á hátíðinni hér heima. Auðvitað ætlið þið að koma og fylgjast með. Svo verður farið á hátið í Mön (veit ekki alveg hvernig það er skrifað), sem er eyja á milli Englands og Írlands, 1.-10 júlí. Maður er að springa af tilhlökkun, 10 daga víkingadjamm. Förum svo til Færeyja helgina fyrir verslunarmannahelgi. Þannig að það verðu á nógu að taka með víkingunum í sumar.
Svo er kallinn að fara í skóla í haust. Á reyndar eftir að fá svar. Sótti um í Iðnsólanum í Reykjavík á upplýsinga og fjölmiðlabrat og tek líklegast prentsmíði eftir það. Það verður þó soldið erfitt að fara í skóla aftur, sérstaklega þegar maður er orðinn vanur að fá full mánaðarlaun síðan ég kláraði MK. En svona er þetta, þarf bara að finna mér sæmilega vinnu með skóla, er ekki viss um hvort ég nenni að vera að vinna aukavinnu hjá Öryggismiðstöðinni, sé samt til.
Djöfull er ég svo sáttur með að Finnar hafi unnið Júróvísjón. Klárlega besta lagið. Helgin byrjaði á því að ég fór til Jónda þar sem hann var með smá partý til að sýna nýja stuttmynd sem hann var að klára. Ég aðstoðaði hann með hljóðupptökurnar. Allavega, við vorum eitthvað að tala um hvað okkur langaði á Papana sem voru að spila á Broadway. Þá tekur einn gaurinn upp símann og svo segir hann við okkur, við erum að fara á Papana FRÍTT. Hann er sem sagt að vinna á Broadway og gat því reddað þessu. Ég var nú samt frekar slakur það kvöld og var bara á bílnum. Var svo boðið að koma á Áslák í Júróvísjónpartý á laugardagskvöldið. Erna úr Rimmugýg var að útskrifast þennan dag og var með veisluna í Mosfellsbæ og því upplagt að hún héldi partý þar. Ég og Gilli kíktum þar við, komum reyndar þegar fjórða lagið var að klárast en náðum þó megninu af keppninni. Hélt auðvitað með Finnlandi. Við Gilli fórum svo á Hressó og hittum Halldóru vinkonu hans ásamt fleirum. Fínt kvöld, hefði kannski samt átt að slaka betur á í drykkjunni.

Jæja, augnlokin eru farin að þyngjast og ég er kominn með þvílíkan náladofa af því að ég ligg svo asnalega í rúminu með tölvuna.

Þangað til næst, sem verður vonandi sem fyrst.
Bæjó

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 00:50:16 / bassi

2 Video frá Liverpool

Ég ákvað ykkur til yndisauka að setja inn 2 video frá því að ég og Davið vorum á The Park fyrir leikinn í Liverpool. Tók þetta á gemsann minn.

 Video 1

 Video 2

Verði ykkur að góðu

Kveðja,
Þorsteinn


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 00:36:37 / bassi

Liverpool

Góðan daginn gott fólk, kannski kominn tími á að krota eitthvað hérna.

Úff, var að koma úr rækninni áðann, er ekki búinn að mæta þar í mánuð og vá hvað það er erfitt og hrikalega er maður fljótur að missa niður þolið. Ég var gjörsamlega búinn eftir æfinguna og var skjálfandi eins og hrísla, samt kláraði ég ekki allt sem ég er vanur að klára. Þarf að fara að taka mig á ef ég ætla að komast einhvern tíman í almennilegt form.

Eins og flestir vita fórum ég og Davíð til Liverpool í byrjun mars að horfa á Liverpool Benfica á Anfield. Þessi ferð var bara snilld þrátt fyrir að Liverpool hafi tapað leiknum. Stemmingin var það góð að tapið varð eiginlega að aukaatriði í ferðinni, þó svo að það hefði nú verið skemmitlegra ef að Liverpool hefði unnið leikinn, en maður tryggir víst ekki sigur með því að fara á völlinn.
Allavega, best að byrja á byrjuninni. Ég og Davíð vorum mættir galvaskir uppúr kl 7, 7 mars á Leifstöð, flugið var svo kl 9 til London Heathrow. Byrjuðum á að fá okkur dýrindis morgunmat. Egg, beikon og ýmislegt í svipuðum dúr. Slöppuðum svo af með bjór þangað til að við fórum út í vél. Flugið var fínt fyrir utan lendinguna. Það var snarhemlað um leið og vélin lenti og maður gjörsamlega hékk í beltinu og svo lá við að flugmaðurinn hafi tekið handbremsubeyju að flugstöðinni. Svo var okkur Liverpoolförunum smalað saman og beint út í rútu þar sem við tók 4 klst akstur til Liverpool. Stemmingin var góð í rútunni og menn vel stemmdir fyrir leikinn. Við sem sátum aftast vorum orðnir frekar óþolinmóðir fyrir stoppi eftir aðeins klst akstur. Gaur sem sat framar henti því til okkar flösku með blandi og urðum við rólegir næsta hálftímann eða svo þegar það var stoppað til að kaupa sér að éta.
Við vorum svo komnir upp á hótel um kl 18 og komum okkur fyrir í herbergjunum. Það var þó stutt stopp því hópurinn ákvað að skella sér á sportbar til að horfa á Barcelona-Chelsea. Þvílíkur sportbar, það voru um 120 sjónvarpskjáir á 3 hæðum og á neðstu hæðinni var skjávarpi sem var varpað á risaskjá. Það voru meira að segja sjónvörp í veggnum fyrir framan pissuskálarnar á klóinum þannig að maður missti ekki af einni einustu mínútu í leiknum.
Svo er bjórinn ekkert smá ódýr þarna úti. Maður keypti 2 bjóra þarna fyrir hvern 1 hér á klakanum. Þannig að maður gjörsamlega lifði á bjór þarna úti, byrjaði daginn á bjór og endaði hann á bjór, hehe.
Svo eftir skemmtilegt kvöld á sportbarnum (alltaf gaman að sjá Chelsea tapa) var skundað aftur á hótelið og vorum við Davíð steinrotaðir fyrir miðnætti eftir langan dag.
Vorum svo vaknaður eldhressir kl 9. Hittum svo hina í hópnum um kl 10 og var rætt um komandi leik. Buðum einnig Portúgölum, sem voru komnir til að styðja Benfica og voru þarna á hótelinu, á fundinn með okkur og fengum þeirra álit á leiknum.
Við fórum svo nokkrir saman í miðbæinn í Liverpool Club Store, vá maður, ég veit núna hvernig himnaríki lítur út. Við gátum eitt endalausum tíma þarna. Ég átti mjög erfitt með að halda aftur af mér svo að ég mundi ekki kaupa allt í búðinni. Ég lét merkja treyjurnar sem ég var nýbúinn að kaupa. Lét setja Sissoko á aðaltreyjuna og Gerrard á varatreyjuna. Keypti mér svo Liverpoolfána til að hafa á leiknum, hann er núna orðinn hluti af veggfóðrinu hjá mér. Keypti mér líka trefil sem er tileinkaður leiknum, á eftir að setja hann á vegginn. Nenni nú ekki að telja upp allt sem ég keypti. Fengum þetta svo í flottum pokum sem eru eins og bakpokar með mynd af að leikmönnum Liverpool með Evrópumeistarabikarinn, einn pokinn endaði upp á vegg hjá mér.
Skunduðum svo upp á hótel og skiluðum dótinu sem við keyptum inn á herbergi og fórum að klæða okkur upp fyrir leikinn. Fórum svo á barinn og hittum aðra Íslendinga og fengum nokkra öllara með þeim. Ákváðum svo að leggja snemma af stað á Anfield. Fórum 5 saman í taxa, og bílstjórinn var greinilega ekkert allt of glaður að fá okkur til sín. Hann var greinilega Everton aðdáandi, með límmiða og mini-trefil í bílnum og með mynd af fjölskyldunni sinni í Everton búningum á mælaborðinu. Að fá 5 gaura í Liverpool fötum, með trefla og fána hefur ekkert verið allt of skemmtilegt fyrir hann. Við vorum mikið að spá í að skrúfa niður rúðna og veifa fánunum út um gluggan, hehe. Svo þegar við komum á Anfield stóðum við bara þarna í smá stund, ekki að trúa því að maður væri loksins kominn þarna. Fórum svo í næstu sjoppu til að kaupa okkur einnota myndavélar þar sem að vélin mín er biluð (komst að því í vélinni á leiðinni út :S ). Fórum svo að mynda allt sem hægt var að mynda þarna. Kop merkið, ég og Davíð við styttuna af Bill Shankly og við Evrópumeistarabikarinn á safninu. Safnið var snilld, það var herbergi þarna sem var tileinkað úrslitaleiknum í Istanbul, það var heimildarmynd í gangi um leikinn og ég held að við höfum verið í allavega hálftíma bara í þessu herbergi, hehe. Fórum svo yfir á The Park, sem er pöbb hinum megin við götuna þar sem Liverpool stuðningsmenn hittast fyrir leiki. Vorum mættir sæmilega snemma og var því fámennt og við Íslendingarnir gátum því plantað okkur við eitt borðið. Stuttu seinna fylltist staðurinn og allir í Liverpool treyjum og syngjandi Liverpool söngva, þvílík stemming.

Ég og Davíð í góðum fíling

einhverjir nabbar að syngja

Það kom svo smá babb í bátinn (hver í fattaði eiginlega upp á þessu orðatiltæki, ég bara spyr). Það varð eitthvað vesen með miðana og voru ekki allir komnir með miða þegar leikurinn var að hefjast. Ég og Davíð vorum einir af þeim, ásamt 6 öðrum. Vá hvað maður varð fúll þá. Við fórum yfir á Park og horfðum á fyrstu mínútur leiksins þar. Svekkjandi að horfa á leikinn í sjónvarpi með leikvanginn nokkrum metrum frá manni vitandi að maður á að vera þar. Stuttu síðar birtist farastjórinn með miðana og við hlupum yfir á Anfield náðum mestum hluta af leiknum. Þrátt fyrir miðavesen fengum við fullkomin sæti, beint fyrir ofan blaðamannastúkuna.

Við fengum snilldar sæti

Við fórum svo niður í bæ á einhvern bar þar. Það var nú ekki að sjá að Liverpool hefði tapað leiknum, allst staðar var fólk í stuði. Barinn var snilld sem við fórum á, góð tilbreyting frá þessum hér á Íslandi. Eftir að barinn lokaði gengum ég og Davíð aðeins um bæinn og hittum einhverja Liverpool aðdáendur syngjandi hástöfum Liverpool söngva, við fórum til þeirra og fórum að syngja með þeim. Eitthvað held ég að löggunni hafi fundist við syngja illa, hún var allavega komin stuttu síðar að reka okkur í burtu. Við fórum því niður á hótel og hittum írskt par fyrir utan og buðum þeim að koma í herbergið okkar og sötra bjór og kjafta. Áður en við vissum af var herbergið fullt af Írum. Það endaði með því að hótelstarfsmaður bankaði upp á hjá okkur og bað okkur um að lækka í okkur, var víst búinn að fá 5 kvartanir vegna hávaða, klukkan var eitthvað um 4-5 leitið um nóttina. Við lækkuðum í okkur í smá stund, en það voru Írar þarna og þeir eru ekki það lágværasta fólk sem maður finnur. Starfsmaðurinn kom því aftur, mjög reiður og hótaði að hringja á lögregluna ef við mundum ekki hætta strax, við urðum því að reka Írana út og fara að sofa. Við rétt svo náðum að vakna áður en rútan fór kl 12:30. Við vorum reyndar að drattast út kl 12:40 og allir komnir í rútuna að bíða eftir okkur. Mjög þreytt ferð í vændum, þetta var samt of óþægileg rúta til að sofa í. Náði að sofa ágætlega í flugvélinni. Davíð varð eftir í London og hitta vini sína þar og hann gleymdi einnota myndavélunum þar, ég get því ekki sett inn myndir frá ferðinni strax. Fékk þessar sem ég setti inn, sendar frá einum sem var með okkur í ferðinni.

Þetta var mjög vel heppnuð ferð, fyrir utan miðavesen og tap. Ég fer pottþétt aftur út og stefni á að fara út næsta vetur. Panta þá miða beint í gegnum Liverpool klúbbinn, EKKI að fara á vegum ÍT ferða, tek ekki áhættu með miðavesen aftur, veit að ég er pottþéttur ef ég panta í gegnum klúbbinn.

úff hvað þetta er langt, ég vona að þið hafið nennt að lesa þetta.

Kveðja
Þorsteinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 19:31:25 / bassi

Mótmælum DV

http://www.deiglan.com/askorun/

Allir að skrifa undir


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.01.2006 22:25:27 / bassi

"#$"#$% NÁGRANNAR

Vá hvað ég er orðinn nett pirraður á nágrönnunum mínum. Er búinn að vera á næturvöktum núna síðustu vikuna og þarf þar af leiðandi að sofa á daginn. En það veit nágranni minn ekki (sá sem er með íbúðina fyrir ofan mig). Þar er verið að bora á daginn og ég get svo svarið það að það heyrist hærra inni hjá mér heldur en þar sem er verið að bora. Hvernig í ósköpunum á maður að sofa í slíkum látum. ARG. Veit fólk ekki að maður þarf að sofa.

Allavega, þurfti bara aðeins að fá smá útrás á þessu. Allt gott að frétta mér. Er bara alltaf að vinna og í skólanum sem fer að klárast fljótlega. Erum alveg að verða búnir að taka upp lagið. Eigum bara eftir að taka upp píanó/hljómborð sem verður á morgum og svo endum við á söngnum. Svo á eftir að mixa þetta allt. Leggst mjög vel í mig, enda verður maður ánægðari með lagið með hverri tökunni. Svo er bara að fara að kaupa sér svona http://start.is/product_info.php?cPath=138_227&products_id=1257 og svona http://www.digidesign.com/products/digi002rack/main.cfm . Ef einhver sér sig knúinn til að gefa mér svona má sá endilega láta mig vita 8)8)

þangað til næst rúsínurnar mínar


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 00:19:36 / bassi

Nýtt blogg (loksins)

jæja, er ekki kominn tími til að láta heyra í sér enda komnir nokkrir mánuðir síðan ég krotaði hér síðast.

Jólin að klárast og maður búinn að hakka í sig mat og nammi, úff. Nú þarf maður sko að fara að taka á. Var annars að vinna öll jólin :( , slapp þó kl 16 á aðfangadag þannig að ég náði einhverjum jólum. Var svo að vinna kl 8-20, 25-27. des. Ekki alveg það skemmtilegasta sem ég hef gert. Fékk þó frí í kringum áramót. Fríið var þó ekki langt því að það var hringt í mig kl 14 á nýársdag (úff, varla farinn að sofa) og beiðinn um að koma að vinna kl 20 á næturvakt og þar sem ég kann ekki að segja nei tók ég það náttúrlega.

Annars hafa síðustu mánuðir verið frekar busy hjá mér. Er alltaf að vinna og í skólanum og lítinn tíma fyrir eitthvað annað. Skólinn klárast svo í feb. Erum kominn nokkuð áleiðis með lagið okkar. Ég og Arnór sömdum það saman og svo fengum við liðsauka til að semja textann fyrir okkur þar sem við kunnum það varla. Svo eru þetta ekkert slor hljóðfæraleikarar sem spila í lögunum okkar. Maður er alveg gapandi eftir tökurnar. Þið fáið svo vonandi að heyra útkomuna í febrúar. Svo er bara að koma sér upp upptökugræjum og fara að taka upp á fullu.

Hvar haldiði að maður verði svo staddur 8. mars? Á Anfield til að horfa á Liverpool rústa Benfica, vííííííííí:haha::haha::haha:

Þangað til næst krúttin mín.

Hafið það gott á nýja árinu og takk fyrir allt á liðnu ári.


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.09.2005 23:40:37 / bassi

Klukk

Aldís frænka var að senda mér klukk. Það virkar þannig að núna þarf ég að klukka 5 aðra bloggara og segja 5 staðreyndir um sjálfan mig. Þessi 5 bloggarar þurfa svo að gera það sama.
 Jæja, best að hlýða kellunni.
  • Ég er í  skemmtilegasta skóla í heimi: www.tonvinnsluskoli.is
  • Ég er í skemmtilegri vinnu
  • Ég held með Liverpool í enska boltanum
  • Ég elska tónlist
  • 5 uppáhaldshljómsveitirnar mínar eru: The Beatles, U2, Metallica, Pink Floyd og Led Zeppelin.
Ég sendi svo klukk á Egil, Díönu (hans Egils), Supriyu, Jónu og Guðrúnu Þóru

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.08.2005 19:58:04 / bassi

Senn líður að vetri, ný vinna og skólinn fer að byrja.

Jæja, hér er ég enn og aftur. Nú styttist í það að ég hætti á Esso og flytji aftur í bæinn. Síðasta vaktin er 14. sept. Búinn að vinna eins og brjálæðingur í sumar og eiginlega gert lítið annað. Maður er eiginlega orðinn vinnualki, vann núna á miðvikudaginnn og fimmtudaginn frá 7 að morgni til 12 að miðnætti, úff, geri það ekki aftur, 17 tíma vinnutörn. Það verður því yndislegt að komast aftur í bæinn.

Skólinn byrjar svo 15. sept. Ég er eins og lítill krakki mig hlakkar svo til að byrja, enda ekki á hverjum degi sem maður fer í svona skemmtilega skóla, eða ég býst við því. Fer svo að vinna í Öryggismiðstöðinni með skólanum. Leggst nokkuð vel í mig, skilst að þeir séu að borga slatta vel. Líka mjög hentugt að ég get sniðið vaktirnar alveg í kringum skólann og get því unnið 100% vinnu með.

Skellti mér svo á Alice Cooper þegar hann kom hérna. Fékk miðann í hendurnar 2 tímum fyrir tónleika, frítt. Var með Davíð og Eiríki á Grundafirði að skipuleggja starfið fyrir veturinn og Davíð fær símtal og segir síðan við mig, Þorsteinn, þú ert að koma með mér á Alice Cooper. Þvílík snilld, endalaust flott show. Leiksýning í gangi alla tónleikana og allir hljómsveitarmeðlimir tóku þátt, og bandið sem hann var með var ekkert smá þétt. Ýkt óheppin þið sem að misstuð af honum.

Jæja, ætli ég láti þetta ekki duga í bili, býst við að ég verði duglegri að blogga þegar ég kem í bæinn og meira að gerast hjá mér.

Þangað til næst sykurpúðarnir mínir


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.07.2005 02:30:28 / bassi

hæbbs

Jæja, kominn tími á smá blogg er þaggi.

Búið að vera nóg að gera hjá mér, er alltaf bara að vinna og í ræktinni. Ég er þó hættur á næturvöktum og orðinn vaktstjóri á dagvöktum. Er að leysa af aðra vaktstjóra í sumarfríum. Mun þægilegra að vera kominn á dagvaktir. Svo eru launinn náttúrlega mun betri þegar maður er vaktstjóri. Yndislegt líka að fá að ráða yfir öllum hinum, nema kannski stöðvastjóranum og hinum vaktstjórunum.

Ég er svo líklegast kominn með vinnu í bænum í haust. Reyndar á tvem stöðum. Bæði hjá Granda (Aldís frænka var svo góð að ath fyrir mig) og Öryggismiðstöð Íslands. Langar eiginglega frekar samt að vinna hjá Öryggiðsmiðstöðinni.

Skellti mér svo á ættarmót um helgina í Galtalæk. Fínt alveg þrátt fyrir skítaveður. Rigndi nánast alla helgina. Samt eitthvað svo notalegt að sitja inn í tjaldi með prímusinn á og hlusta á regnið dynja á tjaldinu. Stytti svo upp á sunnudeginum þannig að maður þurfti ekki að taka niður tjaldið rennblautt.

Verlsunarmannahelgin verður líklegast frekar róleg hjá mér í ár. Verð tæknimaður upp í Vatnaskógi.

Átakið gengur alveg ágætlega hjá mér ennþá. Er búinn að missa rúm 8 kg. Missti mig reyndar í smá tíma með mataræðið en er kominn á rétt skrið aftur. Held því vonandi áfram.

Jæja, ég er farinn að sofa

bæjó


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.06.2005 22:53:54 / bassi

Hellú, bara að láta vita af mér

Jæja, er ekki kominn tíma á að blogga smá.

Ég var að klára vaktatörn núna í nótt og er kominn í vikufrí, ahhh, yndislegt. Laugardagsnóttinn var geðveiki, það allt brjálað að gera hjá okkur, allir að koma inn eftir djammið að kaupa sér pulsur. Ég og Egill höfðum varla undan að afgreiða alla sem komu. Á föstudaginn var svo Essodjamm, það er einn að hætta hjá okkur og við hittumst á Pakkhúsinu til þess að kveðja hann. Byrjuðum kvöldið á pizzahlaðborði og á svipstundu varð ég allt í einu orðinn aðalskemmtiatriðið. Ég fékk mér nefninlega eina sneið af TNT (pepperoni, jalapeno og hreinn chili). Ég tók fyrsta bitan og það gjörsamlega sauð á mér. Hjartslátturinn tífaldaðist, ég varð alveg eldrauður í framan og byrjaði að svitna. Af einhverjum ástæðum hafði fólk mjög gaman af því að horfa á mig. Svo sögðu allir að ég yrði nú að klára sneiðina og auðvitað varð ég þá að gera það, úff, ég hef aldrei verið svona lengi með eina sneið. Svo þurfti ég reyndar að yfirgefa teitið þar sem að ég átti að vera á næturvakt og enginn gat unnið fyrir mig (allir náttúrlega að djamma þetta kvöldið)

Skellti mér svo á Iron Maiden. Ég lenti reyndar í algjöru veseni rétt fyrir tónleikana. Þegar við Egill vorum komnir uppeftir uppgötvaði ég að miðinn minn var horfinn, sem var soldið skrítið þar sem ég var með hann í höndunum nokkrum mínútum áður. Við snérum bílnum nokkrum sinnum við til að finna miðann en hann fannst hvergi. Vá hvað ég var orðinn pirraður og reiður þarna. Ég lét Egil bara fara á undan mér svo að hann mundi nú ekki missa af þessu líka. Ég hringdi nokkur símtöl og endaði á að hringja í RR sem hélt tónleikana og sagði þeim hvað hefði gerst og þeir buðu mér að kaupa annan miða í A svæði þó svo að það væri uppselt. Þá gat ég tekið gleði mína á ný þó svo að ég þurfti að borga mig tvöfalt inn, ég nennti bara ekki að vera að pirra mig yfir því svona rétt fyrir tónleikana. Þegar ég kom svo niðureftir voru Nevolution byrjaðir að spila og komu þeir mér nokkuð á óvart. Ég hafði reyndar aldrei heyrt í þeim. Þeir tóku Blackended með Metallica og þeir náðu því alveg ótrúlega vel, maður upplifði allavega smá flashback (þegar ég fór á Metallica í fyrra).

Svo stigu Iron Maiden á sviðið og vá hvað þeir voru góðir. Ég fór allavega mjög sáttur heim. Hefði reyndar vilja heyra Fear Of The Dark, en þeir tóku bara lög af 4 fyrstu plötunum sínum þannig að maður fær bara að heyra það næst þegar þeir koma. Egill fékk að prófa að bodysurfa, við Davið vippuðum honum upp og áhorfendurnir báru hann uppi þangað til að hann var kominn fremst.

Ég og Egill mættum svo eldhressir í vinnuna kl 1. Áttum að byrja um 23:00 en fengum aðra til að vera fyrir okkur þangað til við komum til baka af tónleikunum.

Ég er svo búinn að fá inngöngu í skólann hjá Þorvaldi Bjarna. Ég þarf bara að gera upp við mig núna hvort í vilji eyða 290.000 kr í þetta eða safna mér fyrir íbúð. Það kemur bara í ljós í haust.

Átakið gengur ennþá mjög vel, ég er búinn að missa um 6 kg og held vonandi áfram niður.

Þangað til næst. Bæjó.


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.05.2005 13:17:43 / bassi

Lífið er yndislegt

Voðalega er allt eitthvað gott þessa dagana.
Liverpool eru Evrópumeistarar, átakið mitt gengur eins og í sögu, ég kominn í vikufrí og útborgun á morgun, hvað er hægt að biðja um meira.

Er kominn í vikufrí núna og fer að vinna næst á mánudaginn eftir viku. Gott að geta slappað aðeins af eftir vikutörn á næturvöktum. Nú er bara planið að slappa af í viku og fara til einkaþjálfarans þess á milli.
Næturvaktirnar leggjast bara mjög vel í mig og er alveg furðuauðvelt að vaka svona á nóttunni. Og alveg furðulegasta fólk sem dettur inn á stöðina hjá okku á nóttunni, sérstaklega um helgar. Fólkið að koma af djamminu að fá sér að borða. Við náum að skemmta okkur mjög vel yfir þessu fólki. Ætli maður sé svona sjálfur þegar maður er á djamminu, hehe.

Af átakinu að segja að þá gengur allt rosalega vel. Fór í mælingu hjá þjálfaranum í gær og var vigtaður, mældur bak og fyrir og fituprósentan var mæld. Ég hef misst 4,5 kg síðan um síðustu mánaðarmót. Ég er nokkuð sáttur með það. Þjálfarinn minn sagði að það sem að ég er búinn að brenna af hreinni fitu jafnist á við 8 smjörlíkisstykki, namminamm. Ég er allavega ánægður með árangurinn. Ég hef því ákveðið að ráða þjálfarann allavega 1 mánuð í viðbót. Þetta er reyndar ógeðslega dýrt en er algjörlega þess virði. Maður er búinn að reyna allt of oft sjálfur og það hefur bara klúðrast þá. Vona bara að næsti mánuður verði jafn góður.

Liverpool eru Evrópumeistarar, þvílík hamingja. Ég fór á Pakkhúsið hér á Selfossi til að horfa á leikinn. Staðurinn var fullur af Liverpool mönnum og ég held að það hafi verið svona 3 AC-Milan menn. Maður var eiginlega niðurbrotinn í hálfleik því maður bjóst ekkert við að Liverpool næði að komast úr þessari stöðu. Stemminginn var heldur ekki mikil á Pakkhúsinu. Þegar Gerrard skoraði svo á 54. mín. varð allt vitlaust og við svo búnir að jafna 3-3 á 60 mín. Þvílíkur leikur. Spennan var gríðarleg. Ég var alveg skjálfandi þegar venjulegur leiktími var búinn og framlenginginn var að hefjast, ég hélt að taugarnar hjá mér myndu gjörsamlega gefa sig þegar framlengingin var búinn og enn jafn og allt stefndi í vítaspyrnukeppni. Sem betur fer tókst okkur nú að vinna þennan leik og stemmingin var þvílík á Pakkhúsinu. Milan aðdáendurnir voru gráti næst eftir leikinn. Mér skilst að það hafi brotnað þarna 5 stólar og sófinn hafi klofnað, nokkuð gott það hehe. Gaurinn sem sat við hliðina á mér tókst nú að brjóta stól þegar hann var að fagna einu markinu.
Ég fór svo beint í vinnuna eftir leikinn og settu Liverpool menn soldinn svip á kvöldið. Menn voru að fagna langt fram eftir nóttu.
Ég er allavega búinn að ákveða það að ég fer á Anfield á Liverpool leik næsta vetur, ég hreinlega bara verð.

Ég er svo búinn að sækja um hjá Þorvaldi Bjarna og nú býð ég bara eftir svari. Vona bara að það verði jákvætt.

Ég kveð að sinni og ég skal reyna að vera duglegri að skrifa eitthvað á þessa síðu.


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2005 15:08:00 / bassi

Fyrsta næturvaktin í kvöld, vííí

*Geisp*. Var rétt í þessu að skríða á fætur. Er að snúa sólahringnum við fyrir kvöldið og vikuna. Egill er búinn að vera á næturvöktum alla helgina og ég var á kvöldvöktum og ógeðslega var fyndið að sjá hann koma á vaktina kl 23:30 grútmyglaðan. Ég verð á næturvöktum fram á föstudag og svo aftur á mánudaginn og þá í 7 daga og er þá kominn á vatkina hans Egils. Þetta leggst bara ágætlega í mig. Svo á maður alltaf 7 daga frí á milli þannig að maður hefur nógan frítíma í sumar fyrir útilegur og slíkt.
Var svo að kaupa mér bíl um mánaðarmótin. Opel Astra. Ég var alvega að gefast upp á því að vera bíllaus hérna í sveitinni. Sérstaklega þegar ég var ennþá að vinna í Hveragerði og bý á Selfossi og þurfti alltaf að taka rútu á milli. Og svo ef maður ætlaði í bæinn að þá var maður algerlega háður því hvenær rútan færi. Ekki alveg að gera sig. Annars er þessi bíll að reynast mér alveg ágætlega og á vonandi eftir að gera það á meðan ég á hann.

Af hverju þarf maður alltaf að fá harðsperrur þegar maður er að taka á. Var að drepast úr harðsperrum þegar að ég var að byrja hjá einkaþjálfaranum. Þetta eru sko engir slökunartímar, það get ég sko sagt ykkur. Þær voru nú reyndar bara slæmar fyrst og núna er maður orðinn nokkuð góður. Það er alveg ótrúlegt hvað maður getur gert sumar æfingar alveg kolvitlaust þegar maður er að reyna að gera þær sjálfur. Þjálfarinn er alveg búinn að taka mig í gegn hvað það varðar. Það er ótrúlegt hvað það munar miklu þegar maður gerir æfingarnar rétt, þó svo að þær hafi ekki verið mikið vitlausar.
Ég þarf líka alltaf að skrifa í matardagbók allt sem ég borða. Ótrúlegt hvað það getur hjálpað manni að borða réttan mat. Ég þarf nefninlega að skila henni til þjálfarans og maður fær bara samviskubit ef maður fær sér eitthvað óhollt og skrifar það ekki inn þannig að ég er búinn að snúa gjörsamega við mataræðinu hjá mér. Ég má reyndar hafa einn svindldag í viku. Ég ákvað að hafa hann í gær og fékk mér beikonpulsu, kók og prins polo í vinnuni og mér leið eiginlega bara illa eftir á. Var hálfbumbult og eiginlega dauðsá ég eftir því að hafa fengið mér pulsuna. Annars gengur átakið bara mjög vel. Ég er búinn að missa c.a. 2 kg síðan um mánaðarmótin og mér líður miklu betur, bæði líkamlega og andlega.

Það stefnir allt í það að maður eigi eftir að vera duglegur að fara á tónleika í sumar. Ég er þegar búinn að fara á Robert Plant og The Shadows. Báðir tónleikarnir komur mér virkilega á óvart. Ég hélt að Plant væri orðinn útbrenndur og ekkert skemmtilegur lengur en annað kom sko á daginn. Þetta voru víst bestu tónleikarnir hans í mörg ár. Það var alveg ótrúlegt að sjá goðið þarna nokkrum metrum fyrir framan sig. Og röddin var í þrusugóðu formi. Eiginlega alveg eins og þegar hann var í Led Zeppelin, bara eldri. Og hljómsveitin hans var þrusugóð. Og auðvitað tók hann nokkra Led Zeppeling slagara. Einu vonbrigðin voru að hann tók ekki Immigrant Song sem eins og flestir vita er samið þegar Zeppelin voru hérna á Íslandi um 1970 og er í raun samið um Ísland. Hann tók reyndar nokkrar línur úr því í rólegri og blúsaðri útgáfu. Ég var samt mjög sáttur eftir æðislega tónleika.
Ég bauð mömmu minni með mér á Shadows núna 5. maí. Hún átti afmæli 6. maí og ég gaf henni þá í afmælisgjöf. Rosalega komu þeir á óvart. Þeir spiluðu í 3 tíma með smá hléi. Ótrúlega góðir tónleikar. Þeir voru líka í banastuðu og sögðu endalausa brandara á milli laga.
Svo styttist óðum í Iron Maiden. Ég get varla beðið lengur. Ég er með í láni tónleika með þeim á DVD og er búinn að horfa soldið á þá.
Ég fer líka á Velvet Revolver og mig dauðlangar að fara á Joe Cocker, verð bara að sjá til með hann þegar nær dregur og hvort það verða einhverjir miðar eftir. Ég kem svo í bæinn um helgina og ætla sko að njóta þess að sofa í rúminu mína. Ahhh.
Hópurinn sem var með Jonnhy Depp maraþonið ætlar svo að hittast heima hjá mér á laugardaginn og horfa á Júróvísjón. Go Selma. Eða bara eitthvað. Hún á örugglega eftir að standa sig vel í þessari keppni og á pottþétt eftir að komast í aðalkeppnina.

Ætli þetta sé ekki orðið gott núna. Ég skrifa svo sjaldan að það kemur alltaf heil ritgerð loksins þegar eitthvað kemur frá manni.
Já eitt á meðan ég man. Ég hef verið í vandræðum með að komast inn á myndasíðuna mína. Er þetta eitthvað bara hjá mér eða kemst enginn inn á hana?

Bæjó.

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4